Í-RIS

BUT NOT WHAT ??

23.08.2007 12:42:12 / irisdogg

Þið losnið ekkert við mig á næstunni !

Já gott fólk.. Mér var boðin vinna á Íslandi og ég tók henni svo að ég verð hérna í einhvern óákveðinn tíma :haha:

Núna þarf ég að fara að undirbúa vetruinn ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 21:39:30 / irisdogg

1-2 dagar frá því að ég kom frá Balí.. ??

Jæja, þá er frábært sumar á enda og ég á leiðinni til Kuala á föstudaginn.. Við Lára erum búnar að gera ótrúlega mikið af skemmtilegum hlutum í sumar og hitta mikið að yndislegu fólki. Við vorum að vinna á Hótel Skaftafelli og kynntumst þar brilliant fólki from all over the world, snilldar lið:haha: !! Við erum búnar að fara í útsýnisflug hjá Vatnajökli, í river-rafting, á snjósleða, á fjórhjól, fara uppá Svínafellsjökul, á Jökulsárlón, á Humar hátíð, á Þjóðhátíð, á Danska daga og svo framvegis.. Þannig að ég þyrfti að skrifa 'hellíti' langt blogg ef að ég ætti að segja ykkur frá þessu öllu :!:  En akkúrat núna nenni ég ekki að skrifa meira, en ég lofa að skrifa eitthvað þegar ég er komin til Malasíu 8)

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 10:55:52 / irisdogg

Brjáluð !!

Ég var búin að skrifa þvílíka ritgerð um ferð sem að við vorum að koma úr frá Balí. Ég var ekki alveg búin, þá kom allt í einu : skráning á færslu hófst og allt hvarf  :evil: Ég er svo pirruð að ég nenni ekki að skrifa þetta allt aftur núna, þannig ég ætla bara að skrifa þetta á morgun eða hinn, sorry..  But the bottom line is : Það var frábært á Balí ;)


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 09:11:15 / irisdogg

Ég var að kaupa bíl !!!

  

 Ég var að kaupa bíl :haha: ! Ligga Ligga Lái !!!

sp81597.jpg  Þetta er nýji bíllinn minn !!

Algjört rassgat ;) Hann kostaði 400 þúsund, 2000 árgerð.. Svo fór ég í gær og fyllti hann af bensíni, getið'i hvað það kostaði... 61 ringitt : 1240 krónur íslenskar, það var að vísu smá bensín á honum,, EN ég meina COME ON 8|  snilld !!!


» 13 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 07:35:25 / irisdogg

Gong xi fa cai !!

Gong xi fa cai : þýðir gleðilegt nýtt 'kínverskt' ár.. Þetta er það eina sem að er búið að heyrast út um allt undanfarið, en sem að betur fer er þetta búið núna ! Það eru rosalega mikið að kínverjum hérna og þeir loka öllu í heila viku yfir kínversku áramótin og það er ömurlegt. Síðan gefa þeir einhverjar ang pow gjafir sem að eru peningar rúllaðir inn í eitthvað crap, okkur finnst náttlega bara fyndið að gefa þetta því að í íslenskum peningum talið, þá eru þetta bara einhverjar krónur :haha:

Fyndið að hugsa um það : að ég er búin að upplifa 4 áramót á 14 mánuðum :!:


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 07:33:10 / irisdogg

Allt að gerast.

Já, djö.. Það er bara orðið brjálað að gera hjá stelpunni. Ég byrja á því á morgnanna að fara í gym-ið, borða síðan, fer svo heim að læra (brjál að gera í fjarnáminu, ritgerðir og shit..) og svo fer ég í skólann 8| Já, ég er nebblega byrjuð í svona naglaskóla, allt um neglur, hand- og fótsnyrtingu og sjóleiðis... Ég ákvað samt byrja á því að taka bara fyrsta partinn og sjá hvort að ég fýli þetta :$  En í allt eru 4 partar.. :haha:

Hey, ég gleymdi nú að láta ykkur vita um símann :!: Við hringdum milljón sinnum í símann og enginn svaraði, en samt slökkti aldrei neinn á símanum..  Svo sendi vinkona mín sms og sagði : Please return the phone or i will have the police track it down ! Og viti menn, það kom símtal strax til baka og ég fékk símann daginn eftir :haha:  Snilld !!! Damn idiots...


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 09:50:50 / irisdogg

Hvað er að frétta ?

Vá hvað ég nenni aldrei að skrifa neitt hérna inn :$  Lúði ! En ég ætla samt reyna að skrifa eitthvað svona annað slagið,, en ég lofa engu ;)  

Þá er ég komin aftur til Kuala Lumpur, frekar nice ! Hlýtt og gott !  Ég er byrjuð aftur í skólanum og í ræktinni og alles,, allt að verða eins og það á að vera. Nema það að Atli er á spítala ! Hann var að stökkva á krossaranum og stökk of langt, þannig að hann lenti illa og braut 3 eða 4 bein í ökklanum 8|  Hann er í aðgerð núna, ég var hjá honum áðan og ég hugsa að ég fari aftur til hans í kvöld. Greyið kallinn :S Vonandi fær hann að koma heim bráðlega, hann er búinn að vera á spítalanum síðan á laugardaginn.    Heyrru, helvítis klúður : Ég skrapp á kaffiteríuna áðan á spítalanum og fékk mér súkkulaði köku og gleymdi símanum mínum líklega á borðinu og honum var stolið með því sama ! Damn it !!  Það voru einhverjar 300 myndir inni á símanum, 15 videó og síðan auðvitað öll símanúmrin !! Helvítis djöfull, fyrir utan það að ég dýrkaði þennan síma !! :evil:


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 18:17:38 / irisdogg

Surprise !

Já, haldið'i að stelpan sé ekki bara mætt á klakann ! Ég lenti á aðfaranótt laugardags í -10 gráður ARG !! Þegar ég fór frá Kuala var ca. 35 stiga hiti,,, smá hita munur ;)

Fór svo í skýrn í gær hjá Elsu og Einari, litla prinsessan þeirra heitir Carmen Lea. Alveg yndisleg, ótrúlega vær og góð í kirkjunni og í veislunni. Síðan hitti ég akkúrat á óvissuferð hjá Players, ekki leiðinlegt það ! Missti nú samt af fyrri helmingnum af því að ég fór í skýrnina. En það var sko allt í góðu með það . Hitti staffið bara um kvöldið á Ölver og þar voru sungin þó nokkur lög í annarlegu ástandi :klikk: Bara gaman !!  Og í dag fór ég með mínum elskulega Herjólfi heim til mömmu og fjölskyldunar :haha: Og VÁ hvað er alltaf gott að koma heim !


» 7 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 13:22:30 / irisdogg

Ég elska fíla ;-)

Við Einar skelltum okkur til Phuket um daginn. Phuket er tælensk eyja, hún er við hliðina á eyjunni sem að The Beach, myndin með Leonardo DiCaprio var tekin upp á. Rosalega fallegt þarna,,, við gistum á hóteli  sem bókstaflega var á ströndinni. Nokkur skref frá útidyrahurðinni okkar á ströndina :haha:  Hellíti næs ! Þetta var mjög róleg ferð, Einar greyið sem að verður aldrei veikur, var svo óheppin að næla sér í einhverja helvítis flensu ! Samt leigðum við okkur vespu og skoðuðum eyjuna, sáum einhvern veg uppí fjallið og keyrðum hann. Þar hittum við fólk sem að var að þrífa fílana sína, þau voru með svona elephant trekking bissness. Þannig að við keyptum einhvern búnka af bönunum og fórum að gefa fílunum :haha: Þeir gengu bara um lausir og ef að þeir voru að fara að labba einhvert í burtu, þá kölluðu það bara á þá og þá komu þeir til baka !  Eins og hundar ;) Algjörir töffarar :haha: Svo var einn lítill api þarna líka, gegt fyndinn gaur.. Við gáfum honum einn banana, þá kom einn fíllinn og stal banananum af honum og VÁ hvað apinn varð fúll ! svo kunnu fílarnir líka að hneigja sig, bara snillingar ! Já, það er bara þannig að ég dýrka þessi dýr :haha:  Þetta var alveg magnað :D


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 16:05:22 / irisdogg

Ammæli !

Ég gleymdi að segja ykkur frá því að ég snappaði aðeins um daginn.. Ég fór á hárgreiðslustofu og lét klippa mig frekar stutt og lita hárið mjög dökkt og 'fjólublátt'.. :klikk: Hvað segiði um það ;) hahaha.

Hann Einar minn átti 'ammæli' í gær , hann varð 26 ára (gamli ;) ) og í tilefni dagsins fórum við út að borða. Ég, Einar, Atli, Rabbi, Óli, Melissa og Egill fórum að borða á argentísku steikhúsi, sem að ég og Einar elskum :haha: Eftir mjög góðan mat fórum við Einar, Atli og Rabbi niður í bæ á stað sem að heitir Qba (kúba). Þar fórum við inn í vindla herbergi og strákarnir völdu nokkra rosalega, þaðan fórum við inn í mjög flotta koníaksstofu og strákarnir fengu sér kaffi og koníak. Ég fékk mér bara bjór :haha: en þarna sátum við í einhvern tíma reykjandi vindla og að sötra, djöfull var það næs :!: Ég fékk einn voða flottan vindil, en ég gat bara tekið nokkra smóka áður en ég fékk algjört ógeð :lol: aulinn ég ! Þetta var gegt skemmtilegt kvöld og það gerðist margt fyndið en ég nenni ekki að segja ykkur frá því :haha: óheppin ;)

Það er kominn tími á mig að fara út úr landinu og við erum ekki viss hvort að við eigum að fara til Balí eða til Phuket ( Tælandi), hvað munduð þið gera ? :$


» 13 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 15:11:47 / irisdogg

Allt að gerast og ekkert að ske !

Það er svo rosalega langt síðan að ég hef skrifað eitthvað inn á þessa blessuðu síðu,, að ég veit bara ekkert hvar eða hvernig ég á að byrja :$ Hmm.. Ég, Einar, Miles og Klara keyrðum til Kuantan síðustu helgi. Kuantan er við 'south china sea' og sjórinn er var mjög heitur og 'nice' :haha:. Það var þoka/haze á laugardaginn en við vorum samt bara að chilla við sundlaugina eða í rauninni á ströndinni. Svo fór kellingin upp á herbergi og úr bikiníinu og haldiði að stelpan hafi ekki bara fengið þennan fína lit, sem að var nú samt helvíti fljótur að fara en þó það :S Það var hámað í sig grillaðann humar og nautasteikur og prófað þó nokkra mismunandi kokteila á CocoLoco bar :!: Mjög góð og skemmtileg helgi !!


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 10:34:44 / irisdogg

Ræktin.

Ég er búin að reyna að vera dugleg að fara í ræktina undanfarið, það er svo sem búið að ganga ágætlega en það sem að er mikið erfiðara er mataræðið :!: Allir sem að þekkja mig vita að ég er rosalegur nammi-grís og er mikið fyrir óhollan og sveittan mat ;) Svo var Atli að koma aftur og haldiði að þessi dúlla hafi ekki komið með helling af íslensku nammi ( og allt nammi sem að ég elska ) :$  Vanalega hefði ég hoppað af gleði við það eitt að sjá allt þetta nammi :haha: En ég er að reyna að standa mig vel og borða það ekki EN íslenskt nammi er bara alltof gott :!: Jæja, nóg um það ... En allavega, djöfull er mikið af þessu fólki hérna stór skrítið. Ég skil ekki af hverju sumir eru að hafa fyrir því að mæta í gym-ið. Sumar stelpurnar eru heví málaðar, með helling að skartgripum. Múslima konurnar eru með slæðurnar á hausnum. Þetta lið labbar á 2 á hlaupabrettinu, að spjalla í símana sína (  ég brenni meiru en þau við það að labba bara í mall-inu ! ) Svo var ein gellan í pilsi 8|  Ok, nóg um kellingarnar.. Gaurarnir eru aðeins skárri, en samt :S  Einn einkaþjálfarinn sem var að tala við mig og sagði að ég væri að lyfta jafn þungu og karlarnir 8| !! Ég sagði bara : kannski asíu karlmenn, EKKI íslenskir :!::!: Einn kellingin var í bekkpressu og var að kúka á sig við það að lyfta bara stönginni :haha: ahahaha, auli :klikk:  Já, svo fékk ég annað fyndið komment þegar við vorum að tala um mataræðið. Eftir að ég sagði honum hvað ég borða, þá sagði hann : Já, víst þú borðar á við 3 malay karlmenn þarftu að æfa á við 3 malay karlmenn ! Ég hugsa 'náttlega' bara með mér : eins og það sé eitthvað erfitt  ;)

Og aðeins út í aðra sálma ;)  Ég vildi bara koma því á hreint ; að Einar er maðurinn minn :haha: og Atli er besti vinur minn hérna úti :haha: Ég fékk 'nebblega'  komment um það frá Önnu vinkonu að hún væri hreinlega ekki viss lengur hvor væri hvað :haha: Ég er nú ekkert hissa við erum yfirleitt voða mikið saman (öll þrjú), pabbar Einars og Atla eru bræður og Atli býr 2 hæðum fyrir ofan okkur hérna í KL.. :haha: Ok, þá er þetta komið á hreint ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 15:54:15 / irisdogg

Batu caves

      Go to fullsize image               Go to fullsize image                           Go to fullsize image                  Go to fullsize image

Við Einar fórum í þessa hella á laugardaginn  , þeir heita Batu caves... Á fyrstu myndinni er bara verið að sýna innganginn inn í hellana, þetta eru nákvæmlega 272 tröppur. :lol: Það var sem betur fer ekki svona mikið af fólki þarna þá, en það var samt slatti af öpum þarna hlaupandi um :haha: Á annarri myndinni er verið að sýna inn í hellana sem eru þokkalega stórir og fallegir. Á þriðju myndinni er svona Hindu altari, það er slatti af þeim þarna inni en þau eru öll mismunandi og það er gaman að sjá þau. Einu sinni á ári er svona hindu 'trúar-hátíð' og þá safnast saman í kringum milljón 'pilgrims' og gera allskonar rugl eins og á fjórðu myndinni : að gata sig hingað og þangað,  og stinga allskonar spjótum, krókum og nöglum í sig 8| 


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 10:31:15 / irisdogg

Brjálað að gera ;-)

  

Á laugardagskvöldið fórum við Einar út að borða á veitingarstað sem að er upp í þessum turni (ca 400 metra), órúlega fallegt útsýni 8|  OMG :!: Geðveikt :!: En það var ekkert svo gaman í lyftunni :cry:..  Síðan fórum við á
Bernards að hitta Haffa og Retno. Og svo fór Einar heim, og við 3 fórum aðeins út :klikk:

Í dag fórum ég, Einar og Miles í the Royal Selangor factory.. Vá, þetta var bara flott, ég endaði með því að kaupa 2 kampavíns glös, 2 rauðvíns glös og blómavasa. Einar keypti 4 bjór könnur, 2 með einhverjum sérstökum vökva inni á til að setja í frysti.. Gegt flottar !  Þetta er allt handunnið og ótrúlega flott ! ! Og ég ætla ekki að tala um verðið á þessu :D

Þegar við vorum búin að þessu fór ég og hitti Elin og Huldu,, og við vorum að byrja á svona Jewlery making námskeiði. Magnað, ég bjó til mitt fyrsta hálsmen í dag :haha: Ég er Heví stolt af mér !! Ég hef miklu meiri þolinmæði en að ég hélt ! ! !

Þannig að það er bara búið að vera nóg að gera hjá mér og rosa gaman :haha:  ble


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 08:36:30 / irisdogg

Að klifra !

Ég, Einar og Atli fórum að klifra í gær , djöfull er það geðveikt skemmtilegt !!!!  Þetta er stæsta 'indoor climbing gym' í Asíu og er bara tvemur hæðum fyrir ofan 'gym-ið' okkar :haha: Við fengum einhverja ferlega skrítna skó með harðri tá og alles, síðan var strappað á okkur svona beltis-græju og þá vorum við reddý. Þeir sem að eru að fara í fyrsta skipti verða að vera með einhvern gaur með sér,  til að segja manni til og vera á hinum endanum á kaðlinum.. Sem betur fer :!: Við byrjuðum auðvitað á minnsta veggnum og stækkuðum svo við okkur í hvert skipti, djöfull var þetta gaman ! Ég stóð mig bara helvíti vel, fannst mér allavega :P : ég er bara alls ekki með nógu sterkt grip í lófunum en ég ætla að bæta úr því !!  Því að þetta er eitthvað sem að ég vil gera meira af !! Einar stóð sig geðveikt vel, sérstaklega þegar maður spáir í því að það gaurinn var í brjálaðri aðgerð á hné fyrir bara ca. 4 mánuðum ! Og hann er líka með svo sterkar hendur , annað en ég ;) .. Atli var nú bara brjálaður, hann vildi bara klifra alla veggi sem að hann sá :klikk: Hann er líka með svo sterkt grip,,, útaf því að hann er krossara gaur :D  En þetta er eitthvað sem að ég mæli með að allir ( nema lofthræddir Og pussy's ) prófi,, því að þetta er bara svo djöfulli skemmtilegt og ekki er verra að þetta er rosalega góð hreyfing !!  :haha: 


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6